Um FLORA

Um FLORA

FLORA var stofnað sumarið 2026 af Anítu Rut með eina einfalda hugmynd að leiðarljósi, að hanna fallega og vandaða fylgihluti sem gera hversdagsleikann bæði skipulagðari og skemmtilegri.

Hugmyndin kviknaði þegar mig langaði í tösku fyrir Dyson Airwrap sem væri bæði falleg, vönduð og hagnýt. Ég fann ýmsa valkosti, en enga sem sameinaði það sem ég var að leita að: tímalausa hönnun, vönduð efni og góða skiptingu sem ver tækið og heldur öllu á sínum stað.

Þess vegna ákvað ég að búa hana sjálf til.

Fyrsta varan frá FLORA er taska sem er hönnuð með það að markmiði að auðvelda geymslu og ferðalög með Dyson Airwrap. Hún sameinar fallegt útlit og praktíska hönnun svo þú getir tekið uppáhalds hártækið þitt með þér hvert sem er.

 

Markmið FLORA er að þróa vörur sem sameina gæði, fallega hönnun og notagildi – vörur sem þú nýtur þess að nota á hverjum degi og endast um ókomin ár.

Takk fyrir að vera hluti af ferðalaginu.

Kveðja

Aníta Rut